Kringvarpsstýrið febrúar 2025
Í almannaþágu
Kringvarp Føroya, KVF, er eini opinberi fjölmiðillinn í Færeyjum. Strangar kröfur gilda um alla framleiðslu stofnunnarinnar, en efnið þarf að vera fjölbreytt og standa kröfur sem gerðar eru til fjölmiðla í almannaþágu.
Ríkar kröfur eru gerðar til stjórnenda stofnunnarinnar en þeir þurfa að sýna ábyrgð og trúmennsku í allri sinni framleiðslu. Á sama tíma skiptir það máli að stjórnendur geti hvatt starfsmenn til að sýna sjálfstæði í umfjöllun um mikilvæg samfélagsmál.
Þessi starfslýsing á að veita heildstæða mynd af starfinu og væntingum stjórnar til væntanlegs stjórnanda. Starfslýsingin er grundvöllu ráðningarferlisins og mats á umsóknum. Hún tryggir að KVF og umsækjendur hafi sömu væntingar til starfsins.
Um Kringvarp Føroya
KVF gegnir mikilvægu hlutverki í menningu, lýðræði og velferð í landinu, þar sem það varpar ljósi á og vekur umræðu um mikilvæg samfélagsmál. KVF skal framleiða og miðla gæðaefni og á þann hátt stuðla að því að allir borgarar landsins verði betur í stakk búnir að taka afstöðu til og hafa áhrif á þróun samfélagsins. Efnið skal meðal annars fela í sér hlutlæga og óháða fréttamiðlun, fræðslu, menningu og afþreyingu, þar á meðal dagskrá fyrir börn og ungmenni.
Jafnframt skal KVF stuðla að því að færeyska þjóðin sé betur í stakk búin að skilja heimssamfélagið og lifa og starfa í því og með því.
Landslagið hefur breyst gríðarlega, og færeyskt efni stendur frammi fyrir meiri samkeppni við erlent efni en nokkru sinni fyrr. Í þessum veruleika skal KVF vera sameinandi og upplýsandi menningarberi sem starfar í þágu almennings.
Skipulag KVF er eftirfarandi: Stjórnandi og fjórar deildir, stjórnsýsla, tækni, menning og fréttir og dagskrágerð.
Stjórnandinn mun lúta stjórn Kringvarpsstjórnarinnar sem menntamálaráðherra skipar.
Kjarnagildi
• Sýn: KVF skal vera fremsti menningarberi Færeyinga.
• Hlutverk: KVF skal auðga líf og sjálfsmynd Færeyinga með dagskrá og þjónustu sem upplýsir, þróar og veitir afþreyingu.
KVF hefur fjögur gildi, sem eru:
• Traust: Starfsmenn KVF skulu sýna ábyrgð og trúmennsku í framleiðslu sinni, svo að áhorfendur öðlist traust til KVF.
• Virðing: KVF skal sýna virðulega framkomu í öllu starfi sínu, vinna að varðveislu færeyskrar tungu og menningar og starfa sameinandi fyrir færeyska þjóðina.
• Frumkvæði: KVF skal vera frumkvöðull, ögra og leiða þróun fjölmiðlunar.
• Fagmennska: Í KVF skulu fagmennska, eldmóður, sköpunargleði, fjölbreytni og teymisvinna vera í forgrunni.
Um stjórnandastöðuna
Stjórnandi KVF er æðsti stjórnandi stofnunarinnar og heyrir undir kringvarpsstjórn. Stjórnandinn ber einnig ritstjórnarlega ábyrgð á því efni sem KVF framleiðir. Fjórir deildarstjórar heyra undir stjórnandann og stýra deildunum Stjórnsýsla,, Tækni , Menning og Fréttir og dagskrágerð.
Stefnumótun
Auk daglegrar stjórnunar og starfsmannahalds verður meðal helstu verkefna stjórnandans að ljúka við og hrinda í framkvæmd nýrri stefnu fyrir KVF. Stefnumarkmið KVF er að ná til 80% af notendum í Færeyjum í gegnum miðla KVF. Undir þessu markmiði eru undirliggjandi markmið innan fjögurra sviða: stafrænnar þróunar, framleiðslu, starfsmannamála og tengsla við borgara. Stefnumótunin byggist á vilja kringvarpsstjórnar, stjórnenda og starfsmanna KVF.
Nýr stjórnandi KVF fær tækifæri til að hafa áhrif á stefnuna, þó að hún verði að lokum samþykkt af kringvarpsstjórn, auk þess sem hún þarf að lúta samþykkist Almanna- og menntamálaráðuneytisins.
Dagleg stjórnun
Stjórnandi skal hafa skýra sýn á kjarnaaðgerðir stofnunarinnar, hvernig þær eru best framkvæmdar og hvaða hæfni er nauðsynleg til að uppfylla þær. Hann skal nýta mannauð og fjárhag stofnunarinnar á skilvirkan hátt til að leysa verkefnin.
Ráðningarskilmálar
Starfið, sem er tímabundið í fimm ár, er launað samkvæmt 38. launaflokki í samningi milli Tænastumannafelag Landsins og Fíggjarmálaráðsins, þó án þess að vera embættismannastaða. Grunnlaunin eru eftirlaunatengd. Auk þess er greiddur sérstakur viðbótarbónus sem er ekki eftirlaunatengdur fyrir tímabundna ráðningu. Ráðningarskilmálar eru settir í stjórnendasamning, sem þarf að samþykkja af Fíggjarmálaráðinu.
Mat á umsækjendum
Ráðningarferlið er í höndum ráðningarnefndar, sem kringvarpsstjórnin skipar. Umsækjendur verða valdir í viðtal, og getur ráðningarnefndin valið að framkvæma viðbótarviðtöl eða próf til að meta hæfni þeirra. Niðurstöður úr þessum prófum verða hluti af matsferlinu. Ráðningarhópurinn metur umsækjendur og leggur fram tillögu um ráðningu. Grunnur tillögunnar er umsóknin, viðtölin og aðrar viðeigandi upplýsingar.